Almennar fréttir
Gísli Rafn lætur af störfum
26. febrúar 2026
Stjórn Rauða krossins á Íslandi og Gísli Rafn Ólafsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins.
Arna Harðardóttir fjármálastjóri Rauða krossins tekur við verkefnum framkvæmdastjóra frá og með deginum í dag og þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn. Arna hefur unnið um árabil hjá félaginu og er þar öllum hnútum kunnug.
Stjórn leggur áherslu á að þessar breytingar hafi ekki áhrif á öll þau góðu og þörfu verkefni sem Rauði krossinn vinnur að í þágu samfélagsins.
„Við þökkum Gísla kærlega fyrir samstarfið og þá vinnu sem hann hefur lagt af mörkum í þágu félagsins fyrr og síðar og óskum honum velfarnaðar,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins.
„Rauði krossinn skiptir raunverulegu máli í íslensku samfélagi og það var lærdómsríkt að kynnast starfseminni úr stóli framkvæmdastjóra eftir að hafa verið sjálfboðaliði á árum áður,“ segir Gísli Rafn Ólafsson. „Hjá félaginu starfar samhentur og öflugur hópur starfsfólks, svo ekki sé talað um hundruð sjálfboðaliða, sem ég þakka kærlega fyrir samstarfið og óska alls hins besta í framtíðinni.“
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Nítján nýútskrifaðir leiðbeinendur í skyndihjálp
Innanlandsstarf 19. mars 2026Leiðbeinendur Rauða krossins í skyndihjálp eru nú orðnir 90 talsins eftir nýafstaðið námskeið þar sem 19 nýir leiðbeinendur voru útskrifaðir.
Þorsteinn nýr formaður stjórnar
Almennar fréttir 17. mars 2026Formannsskipti urðu í stjórn Höfuðborgardeildar Rauða krossins á aðalfundi deildarinnar 12. mars en þá tók Þorsteinn Jónsson við formennsku af Fanneyju Birnu Jónsdóttur.
Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum
Almennar fréttir 06. mars 2026Aðalfundur Suðurnesjadeildar Rauða krossins verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 18.00 á Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ.