Almennar fréttir
Kvaddur eftir 30 ára starf fyrir Rauða krossinn
30. mars 2026
Gunnar Margeir Baldursson hefur látið af störfum varaformanns Suðurnesjadeildar Rauða krossins og var kvaddur með góðum þökkum á aðalfundi deildarinnar nýverið.
Í þrjá áratugi hefur Rauði krossinn fengið að njóta krafta Gunnars Margeirs Baldurssonar. Leiðir hans og félagsins lágu fyrst saman er hann hóf störf í sjúkraflutningum hjá Grindavíkurdeild Rauða krossins árið 1996. Um svipað leyti hóf hann sjálfboðaliðastörf fyrir félagið sem hann hefur sinnt allar götur síðan í alls konar tilfallandi verkefnum.
Árið 2018 tók hann við formennsku í Grindavíkurdeildinni og frá sameiningu hennar og Suðurnesjadeildar árið 2020, undir nafni þeirrar síðarnefndu, hefur Gunnar verið varaformaður Rauða krossins á Suðurnesjum. Samhliða hefur hann af alúð og umhyggju sinnt sjálfboðaliðastarfi í Frú Ragnheiði, skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins.
Gunnar lét af störfum varaformanns á aðalfundi Suðurnesjadeildar 11. mars síðastliðinn. Af því tilefni færði formaðurinn, Herbert Eyjólfsson, honum þakkarbréf og gómsæta kveðjugjöf.
„Við þökkum Gunnari fyrir gott og gefandi samstarf og óskum honum velfarnaðar í nýjum ævintýrum,“ segir Fanney Grétarsdóttir, deildarstjóri Suðurnesjadeildar Rauða krossins.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Ingibjörg ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins
Almennar fréttir 26. mars 2026„Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi enda á félagið, starfsfólk þess og sjálfboðaliðar, alveg sérstakan stað í hjarta mínu,“ segir Ingibjörg Elín Halldórsdóttir.
Kvennadeildin styrkir Ylju um 1,3 milljónir króna
Innanlandsstarf 23. mars 2026Kvennadeild Rauða krossins hefur ákveðið að neyslurýmið Ylja fái að njóta hluta af hagnaði búðanna sem deildin rekur á Landspítalanum. Sem fyrr rennur stærstur hluti hagnaðarins til Landspítalans.
Nítján nýútskrifaðir leiðbeinendur í skyndihjálp
Innanlandsstarf 19. mars 2026Leiðbeinendur Rauða krossins í skyndihjálp eru nú orðnir 90 talsins eftir nýafstaðið námskeið þar sem 19 nýir leiðbeinendur voru útskrifaðir.