Fara á efnissvæði

Almennar fréttir

Rauði krossinn boðar til aðalfundar og óskar eftir framboðum

06. febrúar 2026

Rauði krossinn á Íslandi boðar til aðalfundar laugardaginn 9. maí 2026 nk. Á fundinum ber að kjósa stjórnarfólk og er hér með lýst eftir framboðum. 

Rauði krossinn á Íslandi boðar til aðalfundar laugardaginn 9. maí 2026 nk. Fundurinn verður haldinn í Háteigi, á Grand Hótel, Sigtúni 28 í Reykjavík. Dagskrá fundar hefst kl. 9 en skráning kl. 8:30 og er dagskrá fundarins samkvæmt 8. mgr. 7. gr. laga Rauða krossins á Íslandi og verður hún auglýst síðar. Fundurinn er opinn öllu félagsfólki en skráning gesta án kjörbréfa fer fram hér og stendur fram til miðnættis 9. apríl nk.  

Framboð og tilnefningar til stjórnar

Á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem haldinn verður 9. maí 2026 ber að kjósa stjórnarfólk. Hér með er lýst eftir framboðum þeirra sem vilja taka að sér eftirfarandi hlutverk. 

Kjörnefnd Rauða krossins á Íslandi hefur nú tekið til starfa skv. 7. gr. laga Rauða krossins á Íslandi frá 4. maí 2024 og verklagsreglum kjörnefndar. Þetta tilkynnist hér með deildum félagsins, félögum og sjálfboðaliðum sem áhuga kunna að hafa. 

Á aðalfundi Rauða krossins á Íslandi sem haldinn verður 9. maí 2026 ber að kjósa stjórnarfólk sem hér segir: 

  • Formaður til fjögurra ára 
  • Varaformaður til tveggja ára 
  • Þrír stjórnarmenn til fjögurra ára 
  • Einn stjórnarmaður til tveggja ára 
  • Tveir varamenn til tveggja ára 

Hér með er lýst eftir framboðum þeirra sem vilja taka að sér ofantalin hlutverk. 

Tillögum eða upplýsingum um framboð skal koma á framfæri við kjörnefndarfólk, sjá að neðan eða skriflega til Landsskrifstofu á netfangið frambod(hjá)redcross.is eða í pósti merkt:

Rauði krossinn á Íslandi – kjörnefnd 
Efstaleiti 9 
103 Reykjavík

Frestur til að skila tillögum og framboðstilkynningum er til miðnættis mánudaginn 9. mars 2026.

Kjörnefndin er þannig skipuð: 

Kristján Sturluson, krisstur(hja)gmail.com  

Guðný H. Björnsdóttir, gudnyhalldora(hja)gmail.com  

Hrund Snorradóttir, hrundsnorra(hja)hotmail.com 

Guðrún Vala Elísdóttir, vala(hja)simenntun.is 

Varamenn:  

Brynjar Þór Vigfússon, brynjar(hja)brynjarv.is 

Guðrún Erla Sumarrós Víðisdóttir, sumarrosgudrun(hja)gmail.com