Almennar fréttir
Samkomulag um kaup og rekstur sjúkrabifreiða í höfn
11. júlí 2019
Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða.
Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða. Heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið við undirritun þess í dag. Samkvæmt því mun Rauði krossinn áfram annast rekstur sjúkrabíla, viðhald og innkaup gegn árlegu fjárframlagi af hálfu ríkisins. Fyrirliggjandi samningur rann út í lok árs 2015 og hefur endurnýjun sjúkrabílaflotans tafist frá þeim tíma.
Í kjölfar samkomulagsins sem gildir til loka árs 2022 verður tafarlaust ráðist í kaup á 25 nýjum sjúkrabifreiðum samkvæmt útboði sem nú stendur yfir og vænta má þess að fyrstu bílarnir verði teknir í notkun á árinu 2020. Reiknað er með að stærsti hluti bílaflotans verði endurnýjaður á samningstímanum.
,, Rauði krossinn á Íslandi hefur nú annast þessa þjónustu við góðan orðstír í hartnær hundrað ár‘‘
Framlenging á þessu sameiginlega verkefni er að sjálfsögðu mikil ánægja fyrir Rauða krossinn. ,,Rauði krossinn á Íslandi hefur nú annast þessa þjónustu við góðan orðstír í hartnær hundrað ár. Sjúkraflutningaþjónustan er samofin sögu félagsins allt frá stofnun þess og við lítum í senn hreykin um öxl og full tilhlökkunar fram á veginn,‘‘ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdarstjóri Rauða krossins.
Heilbrigðisráðherra og forstjóri Sjúkratrygginga Íslands fagna góðum endi á löngum viðræðum
„Það er mikið fagnaðarefni að löngum viðræðum okkar við Rauða krossinn á Íslandi hafi lokið með þessum farsæla hætti. Rauði krossinn hefur sinnt þessu mikilvæga verkefni af fagmennsku og alúð allt frá því að fyrsti sjúkrabíllinn kom til landsins. Það er ánægjulegt að samstarf okkar við félagið haldi áfram. Af hálfu ríkisins hefur verið lögð áhersla á tryggja snurðulausan rekstur og ábyrga meðferð fjármuna til lengri tíma. Öllum ágreiningi hefur verið ýtt til hliðar og hagsmunir almennings og heilbrigðiskerfisins settir í forgang,“ segir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands tekur í sama streng og heilbrigðisráðherra: „Það er ánægjulegt að hafa náð langþráðu samkomulagi um rekstur sjúkrabifreiða. Samstarf okkar og Rauða krossins hefur ávallt verið gott og við hlökkum til að ráðast nú í það verkefni að endurnýja bílaflotann og tryggja sjúkraflutningafólki og skjólstæðingum þess eins öruggar aðstæður og kostur er á.“
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins, Guðlaug Björnsdóttir og Ingibjörg Þorsteindóttir frá Sjúkratryggingum Íslands
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Fjármögnun neyslurýma áskorun um alla Evrópu
Innanlandsstarf 25. júní 2025Þrátt fyrir að neyslurými fyrir vímuefni hafi fyllilega sannað gildi sitt gagnvart bæði einstaklingum og samfélögum glíma þau við sama vandamálið, hvort sem þau eru í Barcelona eða Borgartúni. Starfsfólk skaðaminnkunarverkefna Rauða krossins sótti upplýsandi ráðstefnu í Strassborg.

Nýtt forvarnarátak: Öryggi barna í sundi
Innanlandsstarf 23. júní 2025„Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er því talað um hinn þögla faraldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum. Félagið hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi í samvinnu við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi.

Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
Almennar fréttir 19. júní 2025„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, nýr formaður Rauða krossins á Íslandi.