Innanlandsstarf
Björguðu lífi systur sinnar og dóttur
18. febrúar 2026
Skyndihjálparmanneskjur ársins 2025 eru feðginin Hinrik Hauksson og Kristín Andrea Hinriksdóttir. Þau komu Bríeti Kolbrúnu, systur Kristínar, til bjargar er hún fór í hjartastopp á heimili fjölskyldunnar.
Í ágúst á síðasta ári varð Kristín Andrea Hinriksdóttir vitni að því að systir hennar, Bríet Kolbrún, fór í hjartastopp á heimili þeirra á Akureyri. Kristín kallaði strax á pabba þeirra, Hinrik Hauksson, sem hafði samband við 1-1-2. Því símtali svaraði neyðarvörðurinn Vilhjálmur Halldórsson.
Úr samtalinu við Neyðarlínuna:
Hinrik: Það er engin öndun.
Neyðarvörður: Er engin öndun?
Hinrik: Hún er meðvitundarlaus núna.
Neyðarvörður: Þá þurfum við að hefja endurlífgun. Kanntu það?
Hinrik: Já.
Eftir að Hinrik hóf endurlífgun með hjartahnoði var Kristín í stöðugu sambandi við 1-1-2 allt þar til viðbragðsaðilar komu á vettvang.
„Þessi fumlausu viðbrögð urðu til þess að Bríet Kolbrún, íþróttakona mikil, er hér meðal okkar, en í kjölfarið á þeirri lífsbjörg sem Kristín og Hinrik veittu fékk hún bjargráð,“ sagði Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, er hann afhenti þeim feðginum viðurkenningu sem skyndihjálparmanneskjur ársins 2025. „Þau sýndu með glæsibrag hvernig rétt viðbrögð geta bjargað mannslífi.“
Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum, segir þær margar hetjurnar sem hafi komið fólki í nauðum til hjálpar á síðasta ári, oft sínum nánustu, rétt eins og í tilviki Hinriks og Kristínar. Þegar kom að því að velja skyndihjálparmanneskju ársins, sem Rauði krossinn hefur veg og vanda að, hafi nokkur komið sterklega til greina. „Almenningur fær oftast ekki að heyra þessar sögur, af þessum hversdagshetjum sem ganga meðal okkar með þessa ótrúlegu lífsreynslu í farteskinu,“ segir hún. „Við sem vinnum að því að bera út boðskap skyndihjálpar vonum ávallt að þegar neyðin bankar upp á, líkt og í tilviki fjölskyldunnar á Akureyri, að viðkomandi hafi farið á skyndihjálparnámskeið. Það getur beinlínis skilið á milli lífs og dauða. Þegar ég heyrði upptökuna af símtalinu og Hinrik segja já við spurningunni um hvort hann kunni endurlífgun þá varð ég alveg óskaplega glöð. Á skyndihjálparnámskeiði lærir fólk ekki aðeins hjartahnoð og annað sem skiptir máli í viðlögum heldur líka að halda ró sinni og einbeitingu og tryggja öryggi á vettvangi. Það er ekki síður mikilvægt.“
Þúsundir læra skyndihjálp
Á síðasta ári fóru yfir 10.000 manns á skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins. „Fæst þeirra hafa reiknað með að þurfa nokkurn tímann á þeirri þjálfun að halda, en sannleikurinn er sá að við vitum aldrei hvenær það að hafa farið á skyndihjálparnámskeið bjargar mannslífi,“ sagði Gísli Rafn er hann afhenti feðginunum viðurkenninguna á Akureyri. „Í neyð er lykilatriði að halda ró sinni, bregðast skynsamlega við og fylgja leiðbeiningum reyndra sérfræðinga Neyðarlínunnar 112, sem eru alltaf til taks, reiðubúin að veita aðstoð og senda nauðsynlegan liðsauka.“
Þekking á skyndihjálp og aðgengi að lífsbjargandi búnaði eins og hjartastuðtækjum margfalda lífslíkur, sagði Gísli enn fremur. „Öll getum við tileinkað okkur þessa dýrmætu kunnáttu, óháð aldri – því skyndihjálp bjargar lífi.“
Hér getur þú kynnt þér þau skyndihjálparnámskeið sem Rauði krossinn býður upp á. Vinnustaðir, einstaklingar, unglingar – heilu fjölskyldurnar – öll geta fundið námskeið sem henta. Fyrir frekari spurningar getur þú sent tölvupóst á namskeid@redcross.is
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum
Almennar fréttir 06. mars 2026Aðalfundur Suðurnesjadeildar Rauða krossins verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 18.00 á Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ.
Gísli Rafn lætur af störfum
Almennar fréttir 26. febrúar 2026Stjórn Rauða krossins á Íslandi og Gísli Rafn Ólafsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins.
Aðalfundur Rauða krossins við Eyjafjörð
Almennar fréttir 25. febrúar 2026Aðalfundur Eyjafjarðardeildar Rauða krossins verður haldinn fimmtudaginn 12. mars næstkomandi í húsnæði deildarinnar í Viðjulundi 2.