Innanlandsstarf

Mannúð á hjólum og í húsi við hafið

11. júní 2025

Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins sem koma að skaðaminnkunarverkefnum félagsins mæta þeim sem nýta sér þjónustuna af fordómaleysi, manngæsku og virðingu. Þannig hefur tekist að skapa mikilvægt traust sem eykur lífsgæði fólks sem oft hefur verið jaðarsett í samfélaginu.

Ylja er öruggt rými fyrir notkun vímuefna um æð og til að reykja ópíóíða og örvandi vímuefni undir eftirliti fagfólks – í fullum trúnaði og án þess að þurfa að gefa upp nafn. Mynd: Nadía Ýr

„Hæ!“ segir starfskona Ylju glaðlega er hún opnar dyr lítils einingahúss við úfið haf einn marsmorguninn í ár. Úti stendur karlmaður sem heilsar kumpánlega á móti. „Hvernig hefurðu það í dag? Þú varst eitthvað niðurdreginn í gær,“ spyr hún hann. „Ég er betri,“ svarar maðurinn og stígur inn í hlýjuna úr köldum vetrardeginum.

Hann er í hópi þeirra rúmlega 150 einstaklinga sem hafa nýtt sér aðstöðuna í neyslurýminu Ylju í Borgartúni frá því að úrræðið var opnað í ágúst 2024. Heimsóknir eru síðan þá orðnar yfir 3.700. Flestar komur á einum degi voru 44 nú í febrúar. „Þörfin fyrir Ylju var því augljóslega mikil og reynslan nú þegar sýnir að þjónustan hefur aukið lífsgæði fólks sem þangað sækir,“ segir Sigríður Ella Jónsdóttir, teymisstjóri skaðaminnkunar og félagsverkefna hjá Rauða krossinum.

Konurnar í brúnni (f.v.): Sigríður Ella Jónsdóttir, teymisstjóri skaðaminnkunar, Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri höfuðborgardeildar, og Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri Eyjafjarðardeildar.

Í Ylju er unnið eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði og markmið þjónustunnar er að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll, sýkingar og smitsjúkdóma og að vernda líkamlega og andlega heilsu fólks sem notar vímuefni. Ylja er öruggt rými fyrir notkun vímuefna um æð og til að reykja ópíóíða og örvandi vímuefni undir eftirliti fagfólks – í fullum trúnaði og án þess að þurfa að gefa upp nafn.

Þar er einnig hægt að fá hreinan búnað fyrir notkun slíkra efna, svo sem nálar, sprautur og filtera, en einnig er veitt skaðaminnkandi leiðsögn og lágþröskulda heilbrigðisþjónusta. „Að lækka þröskuldinn er lykilatriði,“ segir Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. „Það þýðir að fólk getur gengið inn beint af götunni án þess að panta tíma, fengið ráðgjöf og sálfélagslegan stuðning og sömuleiðis fengið gert að sárum og sýkingum svo nokkur atriði séu nefnd.“

Hópurinn sem sækir Ylju býr við margs konar félagslegar aðstæður. Flestir eiga þó sögu um langvarandi og þungan vímuefnavanda og heimilisleysi. Meðalaldur skjólstæðinga er um 37 ár og meirihluti þeirra eru karlmenn.

Starfsfólk Ylju mætir öllum af fordómaleysi, manngæsku og virðingu. Með þeim hætti hefur því tekist að vinna sér inn traust fólksins sem þarf á þjónustunni að halda. „Í Ylju fær fólk því ekki aðeins aðstoð heldur einnig hlýtt viðmót sem getur skipt sköpum fyrir fólk í viðkvæmri stöðu,“ segir Ósk. Fyrir utan teymisstjóra eru fjórir starfsmenn í föstu starfi og einnig eru nokkrir tímastarfsmenn sem er hægt að kalla inn í afleysingar. „Við höfum verið einstaklega heppin með starfsfólk,“ segir hún.

Alltaf eru þrír á vakt í einu og einn þeirra er ætíð hjúkrunarfræðingur. Hjúkrunarfræðingur frá Landspítalanum er svo einnig með aðsetur í Ylju þrjá daga í viku sem Ósk segir gífurlega mikilvægt skref í þjónustu við þennan hóp. Helstu ástæður komu til hjúkrunarfræðings eru skimun fyrir HIV og lifrarbólgu C, sár og sýkingar, skimun og meðferð við kynsjúkdómum og forðasprautur.

Það bætir og bjargar lífi fólks að fá hreinan búnað fyrir notkun vímuefna.

Ylja er opin yfir daginn á virkum dögum. Augljós þörf er á að hafa opið að minnsta kosti annaðhvort á laugardögum eða sunnudögum sem og á almennum frídögum. Til þess þyrfti aukið fjármagn. „Við erum auðvitað alltaf að reyna að finna leiðir til að bæta þjónustu við þá hópa sem þurfa á aðstoð Rauða krossins að halda,“ segir Ósk.

Hlutverk Ylju er margþætt. Úrræðið á m.a. að stuðla að breyttri umræðu um vímuefnanotkun í samfélaginu sem og fræðslu um skaðaminnkun almennt, sem Ósk og Sigríður Ella segja að muni leiða til meiri skilnings og mannúðlegra viðhorfa í samfélaginu. Þær eru sammála um að Ylja hafi þegar breytt lífi margra til hins betra.  

Um borg og bæi

Ylju var eftir mikla leit loks fundinn fastur samastaður í einingahúsi við hafið. En skaðaminnkandi þjónusta þarf að vera á færi sem flestra að nýta. Þess vegna er hún líka á hjólum.

Tugir sjálfboðaliða skiptast á að taka vakti í Frú Ragnheiði sem Rauði krossinn starfrækir á þremur stöðum á landinu.

Frú Ragnheiður, hið hreyfanlega vettvangsstarf Rauða krossins, er starfrækt í sendibíl á þremur stöðum á landinu: Á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Suðurnesjum. Nokkurra ára reynsla er nú komin af þessu mikilvæga úrræði og sýnir hún svart á hvítu þörfina.

Í Frú Ragnheiði er boðið upp á nálaskiptiþjónustu, skaðaminnkandi ráðgjöf, heilbrigðisþjónustu og öruggt rými fyrir fólk sem notar vímuefni. Með rúmlega 6.400 heimsóknum árið 2024 frá 733 einstaklingum og dreifingu á yfir 400 skömmtum af nefúðanum Naloxone, lyfi sem snýr ofskömmtun ópíóða við, hefur verkefnið sannarlega dregið úr heilsufarslegum og félagslegum afleiðingum vímuefnanotkunar.

Félagsleg jaðarsetning

Margir sem nýta sér þjónustu Frú Ragnheiðar og Ylju búa við félagslega jaðarsetningu og hafa ítrekað upplifað vantraust, úrræðaleysi eða jafnvel útskúfun innan félagslega- og heilbrigðiskerfisins. „Frú Ragnheiður er oft fyrsta snerting við þjónustukerfið og brú inn í frekari úrræði,“ segir Ósk. „Þar standa sjálfboðaliðar vaktina – með breiðan bakgrunn og hjartað á réttum stað.“  Um 170 sjálfboðaliðar skiptast á að taka vaktir í Frú Ragnheiði á starfssvæðunum þremur. Þrír eru jafnan á hverri vakt og einn þeirra ávallt heilbrigðismenntaður. 

Að ná góðum tengslum við þann hóp sem nýtir þjónustu Frú Ragnheiðar og Ylju getur aukið lífsgæði fólksins.

Oft ná sjálfboðaliðar og starfsfólk Frú Ragnheiðar að mynda góð tengsl við fólkið sem nýtir þjónustuna. Fólk sem hefur jafnvel verið jaðarsett til lengri tíma og án viðeigandi þjónustu og félagslegra tengsla. „Og að vita til þess að þessi tenging sem myndast getur leitt til þess að lífsgæði viðkomandi aukast, það er algjörlega ástæðan fyrir því að við erum að þessu,“ segir Ingibjörg Halldórsdóttir, deildarstjóri Eyjafjarðardeildar Rauða krossins. „Að mæta þarna fólki, nákvæmlega þar sem það er statt, það er ofboðslega dýrmætt, fyrir samfélagið allt.“

Margföld samfélagsáhrif

Rauði krossinn hefur frá árinu 2009 verið leiðandi í skaðaminnkandi aðgerðum á Íslandi. Með bæði Frú Ragnheiði og Ylju hefur félagið mótað mannúðlega og faglega þjónustu sem mætir einstaklingum þar sem þeir eru staddir – bókstaflega.

Margfeldisáhrif eru af skaðaminnkandi úrræðum. Notkun vímuefna í æð eykur hættu á sýkingum, sárum og æðabólgu, en snemmtæk íhlutun dregur úr alvarlegum heilsufarsvandamálum. Samtímis minnkar því álag á önnur úrræði í heilbrigðiskerfinu, s.s. bráðamóttökur og heilsugæslustöðvar.

Styrktu Frú Ragnheiði

Hluti af samfélagslegri skaðaminnkun verkefnisins er að safna saman notuðum sprautubúnaði, en skaði getur hlotist af ef slíkum búnaði er komið fyrir í ruslatunnu eða skilinn eftir á víðavangi. Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar skiluðu árið 2024 inn yfir 4.700 lítrum af notuðum nálum og sprautubúnaði sem hefur farið í örugga förgun.

 „Það er fullvíst að Ylja og Frú Ragnheiður skipta verulegu máli fyrir notendur þjónustunnar sem og fyrir allt samfélagið,“ segja Ósk og Sigríður Ella. Skjólstæðingar beri mikið traust og hlýhug til þessara verkefna og sjálfboðaliðanna sem í þeim starfa og hafi haft mikil áhrif á framgang og þróun þjónustunnar til hins betra.