Fara á efnissvæði

Innanlandsstarf

Nítján nýútskrifaðir leiðbeinendur í skyndihjálp

19. mars 2026

Leiðbeinendur Rauða krossins í skyndihjálp eru nú orðnir 90 talsins eftir nýafstaðið námskeið þar sem 19 nýir leiðbeinendur voru útskrifaðir. 

Þátttakendur á leiðbeinendanámskeiðinu ásamt reyndum leiðbeinendum sem miðluðu þar af þekkingu sinni.

Rauði krossinn útskrifaði nýverið nítján nýja leiðbeinendur í skyndihjálp. Hópurinn sótti fjögurra daga námskeið, bæði verklegt og bóklegt, í höfuðstöðvum Rauða krossins í Efstaleiti í Reykjavík. „Nú breiða þau út vængina og fara um landið að leiðbeina á skyndihjálparnámskeiðum sem félagið heldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstóri í skyndihjálp hjá Rauða krossinum.

Með þessari góðu viðbót eru leiðbeinendur á vegum Rauða krossins í skyndihjálp nú orðnir 90 talsins. „Það er í takti við okkar markmið en þau snúast um að breiða út boðskap skyndihjálpar sem víðast og til sem flestra undir leiðsögn sérþjálfaðra og framúrskarandi leiðbeinenda,“ segir Hildur. „Það er nefnilega staðreynd að það að kunna að bregðast hratt og rétt við þegar einhver er í neyð getur skilið á milli lífs og dauða.“

Yfir 10 þúsund lærðu skyndihjálp 2025

Hópur reyndra leiðbeinenda miðlaði þekkingu sinni til nýliðanna á námskeiðinu. „Það er ekki nóg að leiðbeinendur kunni sjálfir skyndihjálp, þeir þurfa að hafa færni til að miðla henni til annarra,“ segir Hildur.
Á síðasta ári voru haldin 684 skyndihjálparnámskeið á vegum Rauða krossins sem 10.566 manns sóttu.

Hildur segir mikla vakningu vera um nauðsyn þess að kunna skyndihjálp. Fyrir utan það að læra réttu handtökin við að aðstoða slasaða eða veika öðlast þátttakendur á skyndihjálparnámskeiðum aukið sjálfstraust. „Það er ekki aðeins valdeflandi fyrir einstaklingana að kunna skyndihjálp heldur eykur það seiglu samfélagsins.“

Hér getur þú séð næstu námskeið á vegum Rauða krossins.