Almennar fréttir
Sendifulltrúi til starfa á Bahamas
11. nóvember 2019
Ívar Schram, sérfræðingur á alþjóðasviði Rauða krossins hélt í gær til hjálparstarfa á Bahamas.
Ívar Schram sérfræðingur á alþjóðasviði Rauða krossins á Íslandi hélt í gær til hjálparstarfa sem sendifulltrúi á Bahamas í kjölfar fellibylsins Dorian sem gekk fyrir eyjarnar í byrjun september og olli gríðarlegri eyðileggingu. Í kjölfar hamfarana gaf Rauði krossinn út neyðarbeiðni upp á 17,3 milljónir svissneskra franka til að aðstoða 7.000 fjölskyldur sem urðu fyrir barðinu á fellibylnum. Helstu verkefni Rauða krossins er að aðstoða þolendur með því að koma upp bráðabirgðahúsnæði, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, vernd, tryggja matvælaöryggi og uppbyggingu í kjölfar hamfaranna.
Ívar kemur til með aðstoða Rauða krossinn á Bahamas í að tryggja að hjálparstarf Rauða krossins sé í samræmi við þarfir þolenda og að það sé tryggt að þolendur og viðtakendur hjálpargagna og hjálparstarfsins séu hafðir með í ráðum þegar kemur að dreifingu hjálpargagna, aðgengi að þjónustu og í uppbyggingu í kjölfar hamfaranna.
Ívar hefur starfað með Rauða krossinum í tæpan áratug. Fyrst sem sjálfboðaliði, síðar sem starfsmaður Reykjavíkurdeildar Rauða krossins og síðustu ár sem sérfræðingur í neyðarvörnum og alþjóðlegu hjálparstarfi. Ívar er jafnframt viðurkenndur leiðbeinandi í samfélagslegri nálgun og áreiðanleika sem verður jafnframt meginverkefni hans á Bahamas. Fyrr í vikunni lauk Ívar við tveggja daga námskeið fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða Rauða krossins á Íslandi sem sinnir verkefnum í þágu flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd.
ívar að störfum í Síerra Leóne fyrr á árinu.
Aðspurður segist Ívar spenntur fyrir verkefnum næstu viku sem hann veit jafnframt að verða mjög krefjandi. „Ég er hins vegar mjög vel undirbúinn og fengið mjög góða þjálfun hjá Rauða krossinum og er spenntur að taka þátt í lífsbjargandi hjálparstarfi. Sérstaða Rauða krossins nýtist vel í þessum verkefnum sem og öðrum því það eru sjálfboðaliðar sem bera hjálparstarfið uppi, ég verð þarna til að aðstoða við skipulagningu og þeim til halds og trausts. Í því liggur styrkur Rauða krossins að við vorum þarna áður en hamfarirnar dundu yfir, verðum þarna á meðan verið er að koma hlutum í samt horf og verðum þarna þegar uppbygging hefst og þegar henni lýkur“, segir Ívar sem þakkar Mannvinum Rauða krossins lífsbjargandi stuðning með því að gera Rauða krossinum kleyft að bregðast við neyðarbeiðnum. Ég vona svo sannarlega að fleiri sláist í stækkandi hóp Mannvina því þeir svo sannarlega eru að breyta heiminum.“
Áætlað er að Ívar sinni sendifulltrúastörfum í einn mánuð á Bahamas.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Breytt fyrirkomulag á stuðningi við Grindvíkinga
Innanlandsstarf 01. ágúst 2025Í haust verða gerðar breytingar á stuðningi Rauða krossins við Grindvíkinga sem þurftu að rýma heimili sín vegna jarðhræringanna 10. nóvember 2023. Hætt verður að taka við umsóknum í styrkarsjóðinn Þrótt Grindvíkinga en áfram stutt við einstaklinga með fræðslu og námskeiðum.

Gátu flutt hjálpargögn til Sweida
Alþjóðastarf 30. júlí 2025Alþjóðaráð Rauða krossins fór ásamt sýrlenska Rauða hálfmánanum í sendiferð til Sweida í suðurhluta Sýrlands með nauðsynleg hjálpargögn og til að meta þarfir íbúanna á svæðinu fyrir frekari aðstoð. Fjölmargt fólk frá Sweida og nágrenni býr á Íslandi.

Palestínskur ljósmyndari hlaut mannúðarverðlaun Visa d’Or
Alþjóðastarf 29. júlí 2025Myndaröð Saher Alghorra um daglegar raunir og þjáningar íbúa Gaza er að mati forseta samtakanna Fréttamanna án landamæra „eins og högg í magann – kraftmikil og harmræn í senn“.