Almennar fréttir
Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
19. júní 2025
„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, nýr formaður Rauða krossins á Íslandi.
Sigríður Stefánsdóttir hefur tekið við formennsku í stjórn Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) af Silju Báru Ómarsdóttur. Sigríður hefur verið varaformaður undanfarin þrjú ár, átti sæti í stjórn Eyjafjarðardeildar félagsins frá 2021 og verið sjálfboðaliði allt frá 2017.
Silja Bára sat í stjórn félagsins frá árinu 2018 og var formaður síðustu þrjú árin. Hún var nýverið kjörin rektor Háskóla Íslands og tekur við því embætti í júlí. Formannsskiptin áttu sér stað á fundi stjórnar Rauða krossins í gær, 18. júní.
Sigríður er með BA-próf í almennum þjóðfélagsfræðum frá Háskóla Íslands og framhaldsnám í Þýskalandi í stjórnmálafræði. Hún hefur einnig lokið kennsluréttindanámi. Sigríður kenndi félagsfræði og stjórnmálafræði við Menntaskólann á Akureyri auk þess að sinna stjórnunarstörfum hjá Akureyrarbæ á árunum 1998 til 2017. Þá var hún bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður á Akureyri á árunum 1984-1998 og forseti bæjarstjórnar í tvö ár. Hún átti sæti í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjölda nefnda og ráða á sveitarstjórnarstigi og hjá ríkinu.
Vill tryggja starf um allt land
Rauði krossinn starfar um heim allan og eru fjölmennustu og útbreiddustu hjálparsamtökin. Á Íslandi fagnaði félagið 100 ára afmæli á síðasta ári og hefur því í heila öld sinnt fjölmörgum verkefnum.
„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður. „Í samvinnu við öfluga stjórn vil ég gjarnan leggja sérstaka áherslu á að fjölga sjálfboðaliðum og styðja við þau sem þeim mikilvægu og fjölbreyttu störfum sinna.“ Þá vill hún einnig reyna að tryggja að starf Rauða krossins sé öflugt um allt land. Á sama tíma segir hún mikilvægt að sinna hjálparstarfi og alþjóðastarfi á viðsjárverðum tímum. „Rauði krossinn þarf að halda áfram að vera ávallt til staðar, þar sem þörfin er mest.“
Lýkur stjórnarsetu með þakklæti
Silja Bára segir það hafa verið mikinn heiður að vera í stjórn Rauða krossins og gegna formennsku síðustu árin. „Á þeim tíma sem ég hef verið í stjórn hefur geisað heimsfaraldur, eldgosahrina gengið yfir og flóttafólki á landinu fjölgað gríðarlega,“ segir hún. „Rauði krossinn hefur sinnt mikilvægum verkefnum á öllum þessum sviðum, ásamt því að reka önnur mikilvæg verkefni sem reiða sig á sjálfboðna þjónustu fólks í sínum nærsamfélögum. Við fögnuðum hundrað ára afmæli í fyrra og við það tækifæri gafst gott tækifæri til að skoða hvernig starf félagsins hefur þróast en sami kjarninn haldist – að styðja við fólk í erfiðum aðstæðum.
Það er ástæða til að vera uggandi um framtíðina, stríð geisa víða um heim og hungursneyðir af mannavöldum og náttúrunnar kalla á aukið framlag til þróunarstarfs og friðaruppbyggingar, en áhersla ráðafólks er frekar á að svara kalli eftir aukinni hervæðingu. Verkefni Rauða krossins, hér heima og á alþjóðavettvangi, verður áfram að vera til staðar fyrir samfélagið sitt og það þurfum við að skilgreina á breiðan hátt. Ég lýk stjórnarsetu í Rauða krossinum með þakklæti en held áfram að vera félagi og Mannvinur,“ segir Silja Bára.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
„Neyðarástandið er hvergi nærri á enda“
Alþjóðastarf 26. janúar 2026„Meirihluti fólksins á Gaza býr enn við skelfilegar aðstæður,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. „Byggingar eru enn rústir einar. Fjölskyldur syrgja enn ástvini. Margt af því sem þær þekktu áður er horfið. Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er staðráðin í að halda aðstoð sinni áfram.“
Aldrei fleiri samtöl vegna sjálfsvígshugsana
Innanlandsstarf 22. janúar 2026„Þrátt fyrir að hafa reglulega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfsvígssamtala sem berast 1717, og vera meðvituð um að samtölin hafa verið að þyngjast og verða alvarlegri, þá er okkur brugðið yfir heildarsamantekt ársins,“ segir Elfa Dögg S. Leifsdóttir, sálfræðingur og teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum.
Þróunarsamvinna eflir öryggi og varnir Íslands
Almennar fréttir 21. janúar 2026„Þróunarsamvinna er grundvöllur friðar, stöðugleika, trausts og öryggis í heiminum,“ skrifa framkvæmdastjórar sex mannúðarfélaga. „Brýnt er að stefna Íslands í varnar- og öryggismálum taki mið af því og að litið verði á öfluga þróunarsamvinnu sem hluta af öryggishagsmunum Íslands.“