Innanlandsstarf
Þrjú ráðuneyti styrkja Hjálparsíma Rauða krossins
23. maí 2025
Ótrúlega mikilvæg þjónusta. Ómetanlegt starf. Skiptir ofboðslega miklu máli. Þetta eru orð sem þrír ráðherrar notuðu yfir Hjálparsímann 1717 er skrifað var undir samning um 25 milljóna króna styrk til þjónustunnar. 1717 væri „lína til lífs í mörgum tilvikum“.

Heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra hafa undirritað samning við Rauða krossinn á Íslandi sem felur í sér 25 milljóna króna styrk til reksturs Hjálparsímans 1717. „Þetta er ótrúlega mikilvæg þjónusta,“ sagði Alma D. Möller heilbrigðisráðherra er skrifað var undir samninginn í höfuðstöðvum Rauða krossins á fimmtudag.
Alma hafði forgöngu um styrkveitinguna er ljóst var að fjármagn skorti til reksturs Hjálparsímans og við blasti að skerða þyrfti þjónustuna. „Hún var nú ekki alveg slök í þessu, heilbrigðisráðherrann,“ sagði Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í léttum tón við undirritunina. „Hún elti mig á röndum!“ Fyrir það væri hún þakklát enda „ómetanlegt starf“ unnið hjá 1717.
Niðurstaðan varð sú að auk heilbrigðisráðuneytisins, sem leggur 10 milljónir til rekstursins, ákvað félags- og húsnæðismálaráðherra að leggja til sömu fjárhæð og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta og barnamálaráðherra, fimm milljónir króna.

Hjá Hjálparsímanum 1717, bæði í síma og í gegnum netspjall, bjóða sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins öllum þeim sem hafa samband virka hlustun, sálrænan stuðning og upplýsingar um þau úrræði sem eru í boði.
„Stundum eru þau samtöl sem berast mjög erfið og alvarleg,“ sagði Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, er hann fór yfir stöðuna hjá Hjálparsímanum við undirritunina. „Við höfum séð aukningu í erfiðum samtölum og því er mjög mikilvægt að geta haldið þjónustunni áfram gangandi. Við erum því ótrúlega þakklát fyrir það að þið hafið tekið saman höndum, þrír ráðherrar, og ákveðið að styðja okkur í þessari þjónustu.“
1717 er í raun fyrsta hjálp í geðheilbrigðisþjónustu, sagði Gísli og benti á að stór hluti þeirra sem hefðu samband væru börn og unglingar. „Það skiptir alveg ofboðslega miklu máli að öll þau börn sem eru í erfiðleikum geti haft samband og fengið aðstoð hjá vel þjálfuðu fólki og leiðsögn um næstu skref,“ sagði Guðmundur Ingi barnamálaráðherra.

„Þessi sími 1717, allan sólarhringinn, er lína til lífs í mörgum tilvikum og gefur von,“ sagði Inga Sæland. „Ég er afskaplega stolt af því að fá að taka þátt í þessu verkefni og þessum stuðningi.“
Heilbrigðisráðherra sagði að í framhaldi af þessum samningi þyrfti „auðvitað að finna leið“ til að gera samning við Rauða krossinn um þjónustu Hjálparsímans til lengri tíma svo tryggja megi fyrirsjáanleika í starfseminni. „Það er auðvitað engin spurning að við viljum halda þessu gangandi,“ sagði Alma um þjónustu 1717, „og þess vegna tökum við höndum saman, þessir þrír ráðherrar.“
Stuðningur við alla landsmenn
Elfa Dögg S. Leifsdóttir, teymisstjóri heilbrigðisverkefna hjá Rauða krossinum, þakkaði ráðherrunum traustið. „Það eru mörg sem treysta á Hjálparsímann og með þessu samkomulagi og þessum styrk er ljóst að við þurfum ekki að skerða þjónustuna, eins og við óttuðumst. Og áfram getum við þannig tryggt að það sé hægt að eiga samtal, sama hvað klukkan sé, þegar lífið virðist einmanalegt, vonlaust eða yfirþyrmandi. Það er kjarninn í þessu. Þetta er í raun og veru stuðningur við alla landsmenn.“

Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Fjármögnun neyslurýma áskorun um alla Evrópu
Innanlandsstarf 25. júní 2025Þrátt fyrir að neyslurými fyrir vímuefni hafi fyllilega sannað gildi sitt gagnvart bæði einstaklingum og samfélögum glíma þau við sama vandamálið, hvort sem þau eru í Barcelona eða Borgartúni. Starfsfólk skaðaminnkunarverkefna Rauða krossins sótti upplýsandi ráðstefnu í Strassborg.

Nýtt forvarnarátak: Öryggi barna í sundi
Innanlandsstarf 23. júní 2025„Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er því talað um hinn þögla faraldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum. Félagið hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi í samvinnu við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi.

Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
Almennar fréttir 19. júní 2025„Ég tek við starfi formanns með mikilli auðmýkt, tilhlökkun og virðingu fyrir öllum þeim sem starfa fyrir Rauða krossinn, bæði sjálfboðaliðum og starfsfólki,“ segir Sigríður Stefánsdóttir, nýr formaður Rauða krossins á Íslandi.