Aðventuskemmtun í Sunnuhlíð
Innanlandsstarf 12. desember 2019Heimsóknavinir Rauða krossins heimsækja íbúa í Sunnuhlíð reglulega og um helgina var haldin aðventuskemmtun. Íbúar, fjölskyldumeðlimir, vinir og starfsfólk nutu kræsinga og sungu saman í notalegheitum.
ASÍ styrkir jólaaðstoð Rauða krossins
Innanlandsstarf 12. desember 2019ASÍ, afhenti á dögunum 800 þúsund krónur í jólaaðstoð Rauða krossins.
Alltaf bætast í hópinn nýir hundavinir Rauða krossins
Innanlandsstarf 19. nóvember 2019Alltaf bætast í hópinn nýir hundavinir Rauða krossins. Í október síðastliðnum útskrifuðust 5 hundavinir. Rauði krossinn er afar heppinn að hafa metnaðarfulla og reynda sjálfboðaliða sem halda utan um hundavinanámskeið Rauða krossins.
Sjálfboðaliðar í fullum undirbúning fyrir Jólabasar
Innanlandsstarf 07. nóvember 2019Jólabasar á aðventuhátíð í Kópavogi
Safnaði heimilisklinkinu og bætti svo um betur
Innanlandsstarf 21. október 2019Nýtti vetrarfríið í að safna öllu klinki „sem enginn nennti að hafa í vasanum og burðast með“ og færði Rauða krossinum samtals 18 þúsund krónur.
Félagsvinir eftir afplánun
Innanlandsstarf 17. október 2019Hlutverk Rauða krossins er fyrst og fremst að koma að þar sem þörfin er mest og úrræðin fæst. Hugmyndin með verkefninu er að aðstoða fanga á meðan og eftir að afplánun lýkur. \r\n
Vetrarstarfið að komast á fullt skrið
Innanlandsstarf 25. ágúst 2019Nú er starfsemi Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ að komast á fullt eftir sumarfrí. Helstu verkefnin í vetur verða: félagsstarf fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, námsaðstoð, heimsóknavinir, föt sem framlag, Tækifæri, Karlar í skúrum og skyndihjálparnámskeið.
Rauði krossinn í Kópavogi hefur störf á ný eftir sumarfrí
Innanlandsstarf 12. ágúst 2019Eftir ánægjulegt sumarfrí ríkir mikil tilhlökkun fyrir komandi verkefni og eru mörg áhugaverð verkefni í boði. Það verður gaman að hefja vinnu að nýju með sjálfboðaliðunum okkar og vonandi bætast nýjir við hópinn.
Sumargleði sjálfboðaliða Rauða krossins í Kópavogi
Innanlandsstarf 06. júní 2019Sumargleði sjálfboðaliða Rauða krossins í Kópavogi var haldin í Dvöl í vikunni. Sjálfboðaliðar og starfsfólk kom saman og gerðu sér glaðan dag í sólinni.
Vel heppnað hundavinanámskeið á Akranesi
Innanlandsstarf 23. maí 2019Fyrir tveimur vikum var haldið hundavinanámskeið á Akranesi og flugu allir fjórir hundarnir sem tóku þátt í gegnum námskeiðið.
Skátavinkonur safna fyrir Rauða krossinn
Innanlandsstarf 13. maí 2019Skátavinkonur safna pening til styrktar Rauða krossinum.
Héldu tombólu á Selfossi
Innanlandsstarf 24. apríl 2019Vinirnir Reykdal Máni Magnússon og Unnur Eva Þórðardóttir héldu tombólu á Selfossi til styrktar Rauða krossinum. Þær söfnuðu samtals 10500 krónum sem þær afhentu Rauða krossinum í Árnessýslu.
Neyðarsöfnun vegna ofsaflóða í sunnanverðri Afríku - margt smátt gerir eitt stórt
Innanlandsstarf 18. apríl 2019Núna er rétt um mánuður liðinn síðan flóðin skullu á í sunnanverðri Afríku. Starfsfólk Rauða krossins á svæðinu er nú loks farið að sjá árangur af vinnu undanfarna sólarhringa. \r\nÞú getur stutt starfið með 2900 kr. framlagi með því að senda SMS skilaboðin HJALP í númerið 1900. Einnig má leggja inn á reikning 0342 - 26 - 12, kt. 530269-2649.
Rauði krossinn á Íslandi hlýtur styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála
Innanlandsstarf 17. apríl 2019Þann 12. apríl sl. veitti félagsmálaráðuneytið Rauða krossinum á Íslandi 1,2 milljón króna styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Bætt líðan og gagnkvæm aðlögun flóttabarna og ungmenna - Orff tónlistarsmiðjur. Verkefninu er stýrt af Nínu Helgadóttur, verkefnisstjóra málefna flóttafólks hjá Rauða krossinum og Nönnu Hlíf Ingvadóttur Orff tónlistarkennara.
Vorferð föt sem framlag
Innanlandsstarf 15. apríl 2019Föt sem framlag prjónahóparnir í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsbæ skelltu sér í vorferð og heimsóttu Rauða krossinn á Selfossi með viðkomu í Hveragerði.
Kópavogsdeild Rauða krossins hlýtur styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála
Innanlandsstarf 15. apríl 2019Á föstudaginn í síðustu viku hlaut Kópavogsdeild Rauða krossins styrk fyrir verkefnið Æfingin skapar meistarann frá félagsmálaráðuneytinu úr þróunarsjóði innflytjendamála.
Skyndihjálp - Vefnámskeið og verkleg þjálfun Rauða krossins
Innanlandsstarf 05. apríl 2019Flesta langar til að læra skyndihjálp, en oft situr það á hakanum af ýmsum ástæðum. Rauði krossinn býður nú upp á stutt og hagnýtt vefnámskeið án endurgjalds. Rauði krossinn mælir síðan með því að allir þeir sem taka vefnámskeiðið skrái sig á 2 klst verklegt námskeið sem fyrst til að öðlast sjálfstraust til að veita fólki aðstoð í neyð.
Hugulsöm gjöf til styrktar Rauða krossinum
Innanlandsstarf 26. mars 2019Rauða krossinum barst hugulsöm peningagjöf. Stella Líf safnaði peningum saman í krukku til styrktar Rauða krossinum.