Birting frétta
Ártal

Controlant styrkir kaup á jólagjöfum fyrir börn á flótta

Almennar fréttir 21. desember 2022

Rauði krossinn á Íslandi fékk hálfa milljón króna í styrk frá fyrirtækinu Controlant. Styrkurinn verður nýttur til að kaupa jólagjafir handa börnum á flótta.

Oddfellow styrkir Rauða krossinn á Íslandi

Almennar fréttir 20. desember 2022

Oddfellowstúkan nr. 12, Skúli fógeti, gaf Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, hálfa milljón króna úr líknarsjóði stúkunnar í gær.

Söfnuðu fyrir Rauða krossinn

Almennar fréttir 20. desember 2022

Þessar ungu stúlkur gengu í hús í Hafnarfirði og söfnuðu pening fyrir Rauða krossinn.

ASÍ styrkir Rauða krossinn um jólin

Almennar fréttir 19. desember 2022

Forseti ASÍ afhenti Rauða krossinum á Íslandi styrk upp á 800 þúsund krónur fyrr í dag.

Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða er í dag!

Almennar fréttir 05. desember 2022

Í dag, mánudaginn 5. desember, er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða. Rauði krossinn á Íslandi vill hvetja landsmenn til að líta í kringum sig í dag og þakka þeim.

Nemendur Grundaskóla söfnuðu rúmlega milljón fyrir Rauða krossinn

Almennar fréttir 02. desember 2022

Nemendur og starfsfólk Grundaskóla undirbjuggu markað með fjölbreyttum varningi til sölu. Alls náðist að safna 1.160.000 kr. fyrir Rauða krossinn sem rennur til hjálparstarfs okkar í Malaví. 

Héldu tombólu á Akureyri

Almennar fréttir 01. desember 2022

Hópur stúlkna hélt tombólu við Nettó á Akureyri og afhentu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn 9.060 krónur.

Hver verður Skyndihjálpar- manneskja ársins 2022?

Almennar fréttir 30. nóvember 2022

Á hverju ári útnefnir Rauði krossinn á Íslandi Skyndihjálparmanneskju ársins. Þá er einstaklingi sem hefur á liðnu ári veitt skyndihjálp á eftirtektaverðan hátt veitt viðurkenning við hátíðalega athöfn á 112 daginn 11 febrúar 2023. 

Jólamerkimiðar Rauða krossins 2022 eru farnir í dreifingu um allt land

Almennar fréttir 25. nóvember 2022

Jólamerkimiðar Rauða krossins 2022 eru farnir í dreifingu um allt land. Jólamerkimiðana í ár prýðir Mannvinahjartað sem er merki Mannvina Rauða krossins.

Brimborg styrkir starf Rauða krossins fyrir flóttafólk

Almennar fréttir 24. nóvember 2022

Bimborg hefur ákveðið að veita starfi Rauða krossins fyrir flóttafólk styrk sem nemur 6 milljónum króna, en styrknum er ætlað að styðja við flóttafólk og markmið Brimborgar um að tryggja fólki öruggan stað.

Nýir talsmenn barna á Alþingi

Almennar fréttir 22. nóvember 2022

Undirritun yfirlýsingar talsmanna barna á Alþingi fór fram í Alþingishúsinu í dag. Þingmenn léku sér saman og hétu því að tala fyrir hagsmunum barna.

Jólabasar kvennadeildar Rauða krossins

Almennar fréttir 17. nóvember 2022

Jólabasar kvennadeildar Rauða krossins verður haldin sunnudaginn 20.11 kl 13 - 16 í húsnæði Rauða krossins, Efstaleiti 9, 103 Reykjavík.

Umsögn Rauða krossins á Íslandi um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga

Almennar fréttir 15. nóvember 2022

Síðastliðinn föstudag skilaði Rauði krossinn á Íslandi inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga. Félagið gerir alvarlegar athugasemdir við fjölmörg ákvæði frumvarpsins.

Umsögn frjálsra félagasamtaka í þróunarsamvinnu um frumvarp til fjárlaga 2023

Almennar fréttir 14. nóvember 2022

Frjáls félagasamtök í þróunarsamvinnu skora á löggjafann að tryggja að Ísland nái markmiði sínu um að 0,7% af vergum þjóðartekjum fari í þróunarsamvinnu.

Söfnuðu dósum til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 11. nóvember 2022

Þær Auður Marý, Tinna og Lilja gengu í hús í Kórahverfi og söfnuðu dósum til styrktar Rauða krossinum.

VR styrkir Rauða krossinn um þrjár milljónir

Almennar fréttir 10. nóvember 2022

Styrkjanefnd VR hefur ákveðið að veita jólastyrk VR til Rauða krossins á Íslandi.

Umsögn Rauða krossins á Íslandi um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga

Almennar fréttir 08. nóvember 2022

Rauði krossinn á Íslandi sendi velferðarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga í seinustu viku.

Oddur Freyr nýr fjölmiðlafulltrúi Rauða krossins

Almennar fréttir 08. nóvember 2022

Oddur Freyr Þorsteinsson hefur tekið við starfi kynningar- og fjölmiðlafulltrúa Rauða krossins á Íslandi.